Launakjör og réttindi
Almennt starfsfólk gistihúsa
Önnur kjör og réttindi
Desemberuppbót
Desemberuppbót greiðist eigi síðar en 15. desember ár hver.
Þeir sem hafa verið í fullu starfi 1. desember- 30. nóvember eiga rétt á fullri uppbót eða í samræmi við starfshlutfall og starfstíma. Uppbótin er föst fjárhæð, orlof reiknast ekki ofan á hana.
Fullt ársstarf er m.v. 45 vikur, að orlofi frádregnu eða 1800 klst. Þeir sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða er í starfi fyrstu viku í desember eiga rétt á uppbótinni.
Desemberuppbót á að gera upp við starfslok.
Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlorlofs til starfstíma við útreikning desember- og orlofsuppbótar.
- Full desemberuppbót 2023, var 103.000 kr.
- Full desemberuppbót 2024 er 106.000 kr.
- Full desemberuppbót 2025 er 110.000 kr.
- Full desemberuppbót 2026 er 114.000 kr.
- Full desemberuppbót 2027 er 118.000 kr
Fæði
Starfsfólk á rétt á fæði á vinnutíma því að kostnaðarlausu.
Ferðakostnaður
Atvinnurekandi skal greiða starfsmönnum fjárhæð sem jafngildir 2 ½ startgjaldi leigubifreiða á þeim tíma sólarhrings, sem …
Atvinnurekandi skal greiða starfsmönnum fjárhæð sem jafngildir 2 ½ startgjaldi leigubifreiða á þeim tíma sólarhrings, sem áætlunarvagnar ganga ekki.
Þó er atvinnurekanda heimilt að flytja starfsmenn á eigin kostnað, ef hann óskar þess, enda liggi fyrir reglur um akstursfyrirkomulag.
Lágmarkshvíld
Vinnutíma skal haga þannig að á hverjum sólarhring, reiknað frá byrjun vinnudags, fái starfsmaður a.m.k. 11 …
Vinnutíma skal haga þannig að á hverjum sólarhring, reiknað frá byrjun vinnudags, fái starfsmaður a.m.k. 11 klst. samfellda hvíld. Verði því við komið skal dagleg hvíld ná til tímabilsins milli kl. 23:00 og 6:00.
Óheimilt er að skipuleggja vinnu þannig að vinnutími fari umfram 13 klst.
Sé starfsmaður sérstaklega beðinn að mæta til vinnu áður en 11 klst. hvíld er náð ber honum uppbótarhvíld sem nemur 1 og 1/2 klst. fyrir hverja klst. sem hvíldin skerðist.
Starfsmaður skal hafa a.m.k. einn vikulegan frídag og skal við það miðað að vikan hefjist á mánudegi.
Neysluhlé
Starfsfólk á 8 tíma vöktum skal fá tvo kaffitíma, samtals 35 mín., sem teljast til vinnutíma. Starfsfólk á lengri vöktum skal auk þess fá kaffitíma, sem svarar 5 mín., fyrir hverja klst., og skulu þeir teknir með einu samfelldu kaffihléi.
Orlofsuppbót
Orlofsuppbót greiðist 1. júní ár hvert.
Þeir sem hafa verið í fullu starfi á orlofsárinu, 1. maí – 30. apríl ár hvert, eiga rétt á fullri uppbót eða í samræmi við starfshlutfall og starfstíma. Orlofsuppbót er föst fjárhæð, orlof reiknast ekki ofan á hana.
Fullt ársstarf m.v. 45 vikur að orlofi frádregnu eða 1800 klst. Þeir sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða er í starfi fyrstu viku í maí eiga rétt á uppbót.
Orlofsuppbót á að gera upp við starfslok.
Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning desember- og orlofsuppbótar.
- Full orlofsuppbót 2020 var 51.000 kr
- Full orlofsuppbót 2021 er 52.000 kr
- Full orlofsuppbót 2022 er 53.000 kr
- Full orlofsuppbót 2023 er 56.000 kr
- Full orlofsuppbót 2024 er 58.000 kr
- Full orlofsuppbót 2025 er 60.000 kr
- Full orlofsuppbót 2026 er 62.000 kr
- Full orlofsuppbót 2027 er 64.000 kr
Orlofsréttur
Lágmarksorlofslaun eru 10,17% af öllum launum. Frá og með 1. maí 2024 breytist orlofsávinnsla sem hér segir …
Lágmarksorlofslaun eru 10,17% af öllum launum.
Frá og með 1. maí 2024 breytist orlofsávinnsla sem hér segir (orlof sem kemur til töku á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2025).
- Starfsmaður sem hefur náð 22 ára aldri og starfað hefur í 6 mánuði í sama fyrirtæki skal eiga rétt á orlofi í 25 daga og orlofslaunum sem nema 10,64%
- Starfsmaður sem unnið hefur í 5 ár í sama fyrirtæki á rétt á orlofi í 26 virka daga og orlofslaunum sem nema 11,11%.
Frá og með 1. maí 2025 breytist orlofsávinnsla sem hér segir (orlof sem kemur til töku á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2026).
- Starfsmaður sem unnið hefur í 5 ár í sama fyrirtæki á rétt á orlofi í 28 virka daga og orlofslaunum sem nema 12,07%.
Þá á hver starfsmaður sem unnið hefur 10 ár hjá sama fyrirtæki rétt á 30 daga orlofi og orlofslaunum sem nema 13,04%. Þann rétt eiga starfsmenn með 10 ára starfsaldur nú þegar og er hann óbreyttur á næsta orlofsári.
Orlofsréttur reiknast frá 1. maí – 30. apríl ár hvert. Sumarorlofstímabil er frá 2. maí til 30. september. Áunninn réttur vegna starfa í sama fyrirtæki endurnýjast eftir þriggja ára starf hjá nýju fyrirtæki, enda hafi hann verið sannreyndur.