Lýsing
Nýtt og fallegt hús sem stendur á stórkostlegum stað við fagran fjörðinn. Húsið verður tekið í notkun 28. maí 2020.
Nýlegt sumarhús rétt fyrir utan Hólmavík, í göngufæri meðfram fjörunni. Húsið er 50 fm. með þremur herbergjum, tvö á neðri hæð og eitt í risi. Eldhús og stofa í einu rými á neðri hæð og setustofa með svefnsófa í risi. Baðherbergi með sturtu og þvottavél. Gistirými, er fyrir 7-8 manns, tvíbreið rúm í tveimur í herbergjunum, tvö einbreið rúm í einu herbergi og auk þess svefnsófi í stofu á efri hæð. Sængur og koddar eru fyrir 8 – 10 manns og borðbúnaður fyrir 10 -12 manns. Húsið er vel búið með öllum helsta búnaði: sjónvarp, útvarp, ísskápur, bakarofn, örbylgjuofn og þvottavél, gasgrill og útihúsgögn. Öll ræstiefni og áhöld til þrifa eru til staðar. Húsið stendur á fallegum stað niður við flæðarmálið á milli Hólmvíkur og golfvallarins. Það er hvorki heitur pottur né uppþvottavél.
Upplýsingar
- Lyklabox – lyklanúmer kemur fram á samningi.
- ATH. GÆLUDÝR ERU BÖNNUÐ.
Tenglar
Leiga
- Vikuverð í sumar 26.000 kr.
Annað Hólmavík er stærsta kauptúnið á Ströndum og er jafnframt verslunar– og þjónustumiðstöð sýslunnar og er í sveitarfélaginu Strandabyggð. Á Hólmavík er sundlaug, íþróttahús sem oft er opið á sumrin. Golfvöllur og mörg veiðivötn í kring þar sem hægt er að kaupa veiðileyfi. Veiðikortið gildir t.d. Haukadalsvatni í Haukadal. Svo má ekki má gleyma hinu fræga galdrasafni sem þarna er og vert að skoða. Einnig er veitingastaður og kaffihús á Hólmavík. Sundlaugar í nágrenni við Hólmavík er t.d. á Drangsnesi og Bjarnarfirði og Krossaneslaug og Reykjanesi inn í Djúpi.