Umsókn
Fræðslustyrkir til opinberra stofnana
Sækja um
Smelltu á hnappinn til að sækja um
Lýsing
Fræðslusjóðir Eflingar og opinberra aðila voru sameinaðir árið 2025. Sjóðurinn heitir Fræðslusjóður Eflingar og opinberra launagreiðenda.
Sjóðurinn er fyrir þá sem vinna á opinberum vinnumarkaði, hjá Reykjavíkurborg, öðrum sveitarfélögum og ríkinu ásamt öðrum þeim aðlum sem Efling gerir kjarasamninga við og taka mið af kjarasamningum fyrrgreindra aðila, svo sem hjúkrunarheimili, sjálfstætt starfandi leikskólar og Faxaflóahafnir.
Hægt er að sækja um styrki til námskeiðahalds eða annarar fræðslustarfsemi.
Úthlutunarreglur
Stjórnendur hjá stofnunum og vinnustöðum þeirra launagreiðenda sem eru aðilar að sjóðnum geta sótt um styrki úr sjóðnum, til að fjármagna fræðsluverkefni fyrir þann hóp starfsfólks sem greitt er fyrir í sjóðinn. Styrkir eru veittir til launagreiðanda í heild, einstakra sviða eða vinnustaða eftir atvikum. Nauðsynlegt er að sótt sé um styrk með stuðningi stjórnenda viðkomandi starfseiningar og mannauðsdeildar þar sem við á.
1. Það sem er styrkt:
a. Styrkir eru veittir til skipulagðrar fræðslu á vegum opinberra launagreiðenda sem varða starfsmenn þeirra og er með tilvísun í starfsáætlun eða fræðsluáætlun.
i. Fræðslan getur verið í formi staðnámskeiðs, fjarnámskeiðs eða stafrænnar fræðslu eftir því sem við á.
ii. Verkefnin geta náð til alls vinnustaðarins, eða til einstakra sviða, starfsmannahópa eða starfsstaða.
iii. Ef verkefni nær til annarra en Eflingar félaga greiðist styrkur hlutfallslega í samræmi við hlutfall Eflingar félaga í þátttakendahópi (staðnámskeið) eða markhópi (stafræn fræðsla).
b. Styrkir eru veittir til að fjármagna utanaðkomandi aðstoð fagaðila við þarfagreiningu á fræðslu. Með þarfagreiningu er átt við ítarlega greiningu á fræðsluþörfum starfsmannahópa, deilda eða starfsstöðva. Með greiningu skal fylgja fræðslu- og kostnaðaráætlun ásamt tillögu að fræðsluaðilum til að mæta niðurstöðum þarfagreiningar. Um styrki til þarfagreininga gildir:
i. Upphæð styrkja er hæst 50.000 krónur fyrir hvern félagsmann sem tekur þátt í verkefninu.
ii. Styrkur vegna þarfagreininga er að hámarki 3.000.000 kr. en þó ekki hærri en sem nemur kostnaði við verkefnið.
iii. Æskilegt er að allur starfsmannahópurinn, deild eða starfsstöð taki þátt í verkefninu svo það sé styrkt, nema sérstök rök séu fyrir því að verkefnið nái einungis til Eflingar félaga.
iv. Aðeins er veittur einn styrkur til þarfagreiningar á hverri skipulagseiningu nema miklar breytingar hafi átt sér stað á starfsstaðnum sem krefst annarrar þarfagreiningar.
c. Styrkir eru veittir til innri fræðslu stofnana, samkvæmt eftirfarandi reglum:
i. Gerður er sérstakur samningur við stofnunina um styrkveitingarnar vegna innri fræðslu og hann borinn undir stjórn starfsmenntasjóðs Eflingar og opinberra launagreiðenda til samþykktar. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að bæta inn í samningsdrög öðrum fyrirvörum og ákvæðum, ef sjóðurinn telur þörf á því.
ii. Styrkur miðast eingöngu við þá starfsmenn (þátttakendur) stofnananna sem eru félagsmenn Eflingar-stéttarfélags sem á aðild að sjóðunum. Styrkur greiðist að jafnaði út að loknu fræðslutímabili sem tilgreint er í samningi.
iii. Stofnunin sendir inn formlega dagskrá námskeiðs/-a með dags- og tímasetningum og er hún hluti samnings. Tilkynna skal sjóðnum um breytingar á dagskrá.
iv. Krafist er viðverulista þátttakenda sem er vottaður af kennara/leiðbeinanda fyrirtækisins áður en styrkur er greiddur út.
v. Starfsmenntasjóðurinn áskilur sér rétt til úttektar/heimsókna á meðan á námskeiði/-um stendur.
vi. Ekki er greiddur kostnaður vegna leigu á sal (námskeiðsaðstöðu) né vegna veitinga.
vii. Styrkur miðast við hverja kennda klukkustund starfstengds námskeiðs, hámark 12.500 kr. pr námskeiðsklukkustund. Inni í því verði er þóknun fyrir undirbúning.
viii. Upphæð styrkja er að hámarki kr. 30.000 á félagsmann/almanaksár. Dæmi: stofnun með 30 félagsmenn getur að hámarki fengið kr. 900.000 kr. á hverju almanaksári.
ix. Ekki eru styrktar námskeiðsstundir sem hafa færri en 5 námsmenn.
x. Hægt er að fá styrk fyrir námsgögnum kr. 700 á hvern námsmann/námskeið, enda fari heildarupphæð styrks ekki yfir hámark sbr. lið ii.
2. Fylla þarf út umsókn og senda til Eflingar – stéttarfélags, gegnum gátt á vefsíðu félagsins. Til þess að umsókn sé talin gild þarf að fylgja með:
a) Lýsing á náminu/verkefninu, skipulagi þess og markmiðum.
b) Upplýsingar um ábyrgðaraðila verkefnis hjá starfsstað.
c) Samþykki stjórnanda og mannauðsdeildar eftir því sem við á.
d) Fjöldi starfsmanna á starfsstaðnum eða starfshópnum
e) Fjöldi félagsmanna í Eflingu.
f) Upplýsingar um aðila sem mun koma að þarfagreiningu eða veitingu fræðslu(bæði innri og ytri).
g) Áætlaður kostnaður verkefnis, aðrir styrkir og mótframlag umsækjanda sjálfs.
h) Fræðsluáætlun eða starfsáætlun (nema þegar um er að ræða
þarfagreiningarverkefni).
4. Vegna þarfagreiningaverkefna skal sækja um styrk áður en farið er af stað í verkefnið og skal verkefni hefjast innan við 12 mánuðum eftir að umsókn er samþykkt.
5. Uppgjör fer fram þegar námi eða verkefni er lokið og staðfesting á kostnaði og þátttöku hefur verið lögð fram ásamt stuttri greinargerð um framgang námsins eða verkefnisins. Tilgreina þarf nöfn og kennitölur þeirra félagsmanna sem hafa nýtt sér námið áður en styrkur er greiddur, nema þegar um er að ræða framleiðslu á stafrænni fræðslu, þá þarf að greina frá hlutfalli félagsmanna í markhópi fræðslu.
Ekki mega líða meira en 12 mánuðir frá því að verkefni lýkur þar til að sótt er um endurgreiðslu og uppgjör skal alla jafna fara fram innan 12 mánaða frá styrkveitingu.
Sömu viðmið um ofangreind skilyrði gilda um alla launagreiðendur sem greiða til sjóðsins
Skilyrði
Til skipuleggjenda náms- og kynnisferða erlendis
Eftirfarandi leiðbeiningar eru gerðar fyrir skipuleggjendur náms- og kynnisferða opinberra stofnanna og starfsstaða.
Fyrsta sem þarf að gera er að senda eftirfarandi gögn til fraedslusjodur@efling.is. Stjórn viðkomandi fræðslusjóðs mun taka gögnin fyrir og samþykkja umsókn eða kalla eftir frekari gögnum. Umsækjandi fær tilkynningu í tölvupósti um hvort umsókn sé samþykkt.
- Greinagerð frá yfirmanni um tilgang og markmið ferðar
- Dagskrá ferðar sem er í samræmi við starfsáætlun og markmið vinnustaðarins. Fræðsludagskrá ferðarinnar þarf að spanna að minnsta kosti 2 daga og vera að lágmarki 10 klukkutímar. Dagskrá þarf að fylgja lýsing á hvað skal gera og hver er tilgangur hvers viðburðar.
- Staðfesting móttökuaðila.
Eftir að gögn tengd ferðinni hafa verið samþykkt af stjórn fræðslusjóðs geta félagsmenn Eflingar, hver fyrir sig, byrjað að sækja um styrki vegna ferða- og gistikostnaðar sem er greiddur af einstaklingsstyrk.
Hér má sjá upplýsingar um ferðastyrki til einstaklinga vegna náms- og kynnisferða