Upplýsingar um greiðslu á leigu á orlofshúsi

Vefbókun:

Þegar orlofshús er bókað beint á bókunarvefnum þarf að ganga þar frá greiðslu strax með greiðslukorti. Athugið að ef greiðslan fer ekki í gegn innan klukkustundar þá fellur bókunin niður. Þegar greiðslan hefur farið í gegn er leigusamningur aðgengilegur inn á Mínum síðum, undir „síðustu hreyfingar.“

Bókað á skrifstofu:

Ef hús er bókað í gegnum skrifstofu þarf að ganga frá greiðslu innan tveggja daga eftir að pantað er, ekki er hægt að ganga frá greiðslunni á skrifstofu en krafa er send í heimabanka.

  • Til að bóka sjálfur þarf að fara inn á mitt.efling.is og þar undir Orlofskerfi. Þar er hægt að bóka og ganga frá greiðslu með kredit eða debetkorti.

Hægt er að nálgast leigusamninginn inn á Mínum síðum undir „Síðustu hreyfingar“