Nú er áformað að færa niður réttindi fólks í lífeyrissjóðum vegna lengri meðalævi sjóðfélaga. Hins vegar er lenging ævinnar misjöfn milli þjóðfélagshópa, mest hjá hærri starfsstéttum og minnst hjá verkafólki. Svona breyting kemur misjafnlega niður á ólíkum hópum. Sérstaklega hallar á erfiðisvinnufólk sem mun eiga erfiðara með að lengja starfsævina fram yfir sjötugt til að halda sömu réttindum og áður fengust við 67 ára aldur.
Þetta er skýrt í 3. tbl. Kjarafrétta Eflingar.
Umfjöllun í fjölmiðlum um efni tölublaðsins:
- „Hækkun lífeyristökualdurs hittir ekki alla jafnt fyrir“ – vefur RÚV 12. febrúar 2022.