12. jan Kl — 16:30

Eldhús og mötuneyti – fagnámskeið II

— Menntaskólinn í Kópavogi, Digranesvegi 51 — 12. jan 2026

Kennslutímabil: 12. janúar 2026 – 4. mars 2026
Kennsludagar: Mánudagar og miðvikudagar
Kennslutími: 16:30 – 19:30
Lengd: Samtals 60 kennslustundir.

Ath. Kennslutíminn er til kl 20:00 þegar verkleg kennsla er.

Markmið námskeiðanna er að auka færni starfsfólks til þess að sinna störfum sínum í mötuneytum og eldhúsum. Áhersla er lögð á að auka faglega þekkingu á sviði matvæla- og veitingagreina og gefa fullorðnum tækifæri til fagmenntunar á sviðinu.

Á fagnámskeiðinum I og II er  lögð áhersla á samskipti, tölvunotkun, hreinlætisfræði, næringarfræði og matreiðslu á grænmetisfæði.

Nám á fagnámskeiðunum er metið til eininga í námi í matvæla- og veitingagreinum, þar á meðal námi matsveina og matartækna.


Námskeiðin eru ætluð félagsmönnum Eflingar sem starfa í eldhúsum og mötuneytum og eru þeim að kostaðarlausu.

Skráning er á vefnum, sjá eyðublað hér að neðan. Ef þið þurfið aðstoð við skráninguna getið þið haft samband við Eflingu-stéttarfélag í síma 510 7500.

Umsókn

Skráning í fagnámskeið eldhús og mötuneyti :: Registration for kitchen and cafeteria vocational course
Fullt nafn :: Full name
Staðfesting á skráningu verður send á þetta netfang. / Registration confirmation will be sent to this email address.
Skrifið netfang aftur til að koma í veg fyrir innsláttarvillur :: Re-enter email to prevent typing errors
Ég vil skrá mig á fagnámskeið nr. :: I want to register for vocational course no.