26. maí Kl — 14:30

Eldri borgara kaffi Eflingar

— Atburður liðinn — 26. maí 2024

Sunnudaginn 26. maí næstkomandi verður kaffiboð fyrir Eflingarfélaga 70 ára og eldri haldið í glæsilegum sal í Gullhömrum í Grafarholti. Húsið verður opnað kl 14:30.

Efling stéttarfélag býður gestum upp á kaffi og veitingar auk þess sem hljómsveit spilar fyrir dansi.

Eflingarfélögum er velkomið að bjóða einum gesti með sér.

Hægt verður að nálgast miða mánudaginn 13. maí á skrifstofu Eflingar að Guðrúnartúni 1. Þar sem um takmarkaðan fjölda sæta er að ræða gildir sú regla að fyrstir koma, fyrstir fá. Miðar eru ókeypis. Hver Eflingarfélagi getur sótt 2 miða.