16. des Kl — 15:00

Jólaball Eflingar

— Atburður liðinn — 16. des 2023

Árlegt jólaball Eflingar verður haldið laugardaginn 16. desember í Gullhömrum í Grafarholti kl. 15.00.

Jólasveinar mæta á svæðið, hljómsveit hússins sér um dans og söng í kringum jólatréð og boðið verður upp á veitingar og sætindi.

Miðinn verður á 500 kr stykkið og hægt verður að kaupa miða á skrifstofu Eflingar að Guðrúnartúni 1 á meðan birgðir endast. Hver félagsmaður getur keypt allt að 5 miða. Einungis verður tekið við kortagreiðslum.