12. sep Kl — 17:00

Námskeið fyrir dyra- og næturverði

— Atburður liðinn — 12. sep 2022

Kennslutímabil: 12 september til 22 september á ensku

Kennsludagar: Kennt kl. 17 á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum

Dyravarðanám er ætlað starfandi dyravörðum en einnig hentar námið öðru starfsfólki á hótelum og veitingahúsum t.d. þeim sem vinna næturvaktir. Þetta er starfsnám, ætlað til að efla þátttakendur í starfi.

Mímir heldur námskeiðið í samstarfi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborg. 

Þátttakendur sem lokið hafa þessu 24 kennslustunda námi geta fengið dyravarðaskírteini sem gildir í þrjú ár ef þeir uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Eru 20 ára
  • Hafa hvorki fíkniefna- né ofbeldisbrot á sakaskrá síðastliðin 5 ár

Kennsla fer fram hjá Mími, Höfðabakka 9. Skráning er hjá Mími eða í síma 580 1800.

Félagsmenn geta sótt um styrk fyrir námskeiðsgjaldi hjá fræðslusjóði Eflingar.

Námskeiðið er kennt á ensku.