Efling hafnar lögmæti miðlunartillögu og fordæmir vinnubrögð ríkissáttasemjara

26. 01, 2023

Efling – stéttarfélag hafnar lögmæti miðlunartillögu sem ríkissáttasemjari lagði fram í morgun. Tillagan var lögð fram með óeðlilegum flýti og án samráðs við Eflingu. Ríkissáttasemjari hefur að mati Eflingar brotið ákvæði laga um stéttarfélög og vinnudeilur um samráð við deiluaðila, sem ber að viðhafa áður en miðlunartillaga er lögð fram.

Auk þess gengur miðlunartillaga ríkissáttasemjara gegn öllum venjum í samskiptum aðila vinnumarkaðarins, þar sem tíðkast hefur að miðlunartillögur fari bil beggja. Hin svokallaða miðlunartillaga felur í sér að afstöðu annars aðilans er þröngvað upp á hinn. Tillagan er algjörlega samhljóða síðasta tilboði Samtaka atvinnulífsins. Ekkert tillit var tekið til sjónarmiða Eflingar í tillögunni. Efling fordæmir þessi vinnubrögð.

Á blaðamannafundi í dag lét ríkissáttasemjari þess ógetið að til að miðlunartillögu sé hafnað skv. lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nægir ekki að henni sé hafnað af meirihluta greiddra atkvæða. Mótatkvæði þurfa auk þess að vera fjórðungur af öllum á kjörskrá. Þetta fyrirkomulag atkvæðagreiðslu er ólýðræðislegt og íþyngjandi, sem setur enn frekari spurningarmerki við það samráðsleysi sem embætti ríkissáttasemjara sýnir gagnvart Eflingu.