Ekki boðað til frekari verkfalla – þegar hafin verkföll halda áfram

23. 02, 2023

Samninganefnd Eflingar ákvað á fundi sínum í gær 22.2 að boða ekki til þeirra verkfallsaðgerða sem samþykktar voru í nýliðinni atkvæðagreiðslu (hótel, öryggisgæsla og ræstingar). Félagsmenn á þessum vinnustöðum fara því ekki í verkföll að svo stöddu.

Með verkbanni hafa Samtök atvinnulífsins fært kjaradeiluna að ystu mörkum stigmögnunar, langt umfram afmarkaðar verkfallsaðgerðir Eflingarfélaga. Í ljósi þessa er nauðsynlegt að endurmeta stefnuna og telur samninganefnd ekki rétt á þessum tímapunkti að félagið efni til frekari stigmögnunar verkfallsaðgerða.

Samninganefnd Eflingar sendir Eflingarfélögum í verkfalli baráttukveðjur. Jafnframt vill samninganefnd hrósa Eflingarfélögum sem hafa tekið þátt í verkfallskosningum síðustu vikna og sýnt mikið hugrekki.

Aðrar verkfallsaðgerðir sem þegar eru hafnar munu halda áfram með óbreyttum hætti. Félagsmenn hjá Íslandshótelum, Berjaya Hotels, Reykjavík Edition, Samskipum, Skeljungi og Olíudreifingu halda því áfram í verkfalli.