Matur og menning – vertu með!

28. 08, 2023

Langar þig að útbúa ljúffengan mat frá þínu upprunalandi og leyfa öðrum Eflingarfélögum að smakka í frábærum félagsskap?

Efling býður áhugasömum félögum að vera með í skemmtiviðburðinum Matur og menning sem stefnt er á að halda sunnudaginn 24. september. Á viðburðinum bjóða Eflingarfélagar bjóða upp á mat frá sínu upprunalandi. Þar er af nógu taka því Eflingarfélagar koma frá 144 mismunandi upprunalöndum!

Maturinn verður á boðstólum án greiðslu og ókeypis er á viðburðinn fyrir Eflingarfélaga.

Upplýsingar fyrir þá sem vilja koma með mat:

  • Félagið greiðir efniskostnað við matargerð gegn skilum á kvittun.
  • Efling útvegar diska, hnífapör, servíettur og drykki.
  • Skráið ykkur með eyðublaðinu hér fyrir neðan.
  • Þið fáið nánari upplýsingar sendar í gegnum tölvupóst þegar nær dregur.
  • Opið fyrir skráningar til hádegis 20. september.

Húsið verður opnað fyrir gestum klukkan 14:00 og mun viðburðurinn standa til klukkan 16:00. Tímasetningin er sunnudagur 24. september og staðsetning er Félagsheimili Eflingar, 4. hæð í Guðrúnartúni 1.