Áskorun til lánastofnana

20. 11, 2023

Grindvíkingar takast nú á við einhverjar mestu náttúruhamfarir sem orðið hafa í byggð á Íslandi í hálfa öld. Fjögur þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín og búa við mikla óvissu um framtíð sína og fjárhagslega afkomu. Ljóst er að gífurlegar skemmdir hafa orðið á eignum í bænum og óvíst hvort eða hvenær Grindvíkingar geta snúið aftur.

Undirrituð samtök launafólks skora á lánastofnanir að veita Grindvíkingum fullt greiðsluhlé næstu þrjá mánuði vegna þeirra hörmunga sem á þeim dynja. Í þeirri áskorun felst jafnframt að lánastofnanir falli frá vöxtum og verðbótum á tímabilinu.

Mikilvægt er að Grindvíkingar fái fjárhagslegt svigrúm til að takast á við þau áföll sem þeir hafa orðið fyrir og þann nýja veruleika sem við þeim blasir.

  • Efling-stéttarfélag
  • Matvæla og veitingafélag Íslands (MATVÍS)
  • Rafiðnaðarsamband Íslands
  • Sjómanna og vélstjórafélag Grindavíkur
  • Verkalýðsfélag Grindavíkur
  • Verkalýðsfélagið Hlíf
  • VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna
  • VR stéttarfélag