Efling rýmir orlofshús vegna náttúruhamfara í Grindavík

15. 11, 2023

Í ljósi þeirrar gríðarlega erfiðu stöðu sem skapast hefur í Grindavík, en allir íbúar bæjarins hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna náttúruhamfara, verða orlofshús Eflingar boðin Grindvíkingum til notkunar meðan þörf er á að beiðni viðbragðsaðila.


Efling býður 25 orlofshús á suðurlandi til afnota fyrir íbúa Grindavíkur. Hvert hús rúmar frá 5 – 10 einstaklinga. Í húsunum er öll helstu heimilistæki að finna. Starfsfólk Eflingar og umsjónarmenn orlofshúsa vinna nú að því að undirbúa orlofshúsin til notkunar. Efling þakkar félagsfólki sem hafði bókað dvöl í umræddum orlofshúsum fyrir skilninginn í þeim erfiðu aðstæðum sem nú ríkja. Útfærsla á úthlutun orlofshúsa er enn í vinnslu, en til að fá úthlutað orlofshús bendir Efling á að sækja um á vefsíðu Rauða krossins HÉR.


Frekari fregnir um dreifingu orlofshúsa verður deilt á vefsíðu Eflingar þegar þær berast.

Stjórn og starfsfólk Eflingar senda Grindvíkingum hugheilar samstöðukveðjur.