Trúnaðarráð fordæmir árásir stjórnenda Gildis gegn Ragnari Þór Ingólfssyni

Trúnaðarráð Eflingar tekur undir þá fordæmingu sem stjórnarmeðlimir Eflingar sendu frá sér 5. desember vegna þeirrar aðfarar gegn Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR, sem yfirmenn skrifstofu Gildis – lífeyrissjóðs standa að.

Að mótmæla er lýðræðislegur réttur fólks. Okkur finnst lágkúrulegt að tilraunir verkafólks í Grindavík og velunnara þeirra til að leita réttlætis séu notaðar til að vega að þessum rétti og til þess að koma höggi á Ragnar Þór persónulega.

Samþykkt einróma á fundi Trúnaðarráðs Eflingar 7. desember 2023.