Eldhús og mötuneyti – fagnámskeið I, II og III

Fagnámskeið

Markmið námskeiðanna er að auka færni starfsfólks til þess að sinna störfum sínum í mötuneytum og eldhúsum. Áhersla er lögð á að auka faglega þekkingu á sviði matvæla- og veitingagreina og gefa fullorðnum tækifæri til fagmenntunar á sviðinu.

Á fagnámskeiðinum I og II er  lögð áhersla á samskipti, tölvunotkun, hreinlætisfræði, næringarfræði og matreiðslu á grænmetisfæði.

Á fagnámskeiði III er áhersla á matseðlagerð og matreiðslu fyrir grænkera og þá sem eru með ofnæmi og óþol.

Nám á fagnámskeiðunum er metið til eininga í námi í matvæla- og veitingagreinum, þar á meðal námi matsveina og matartækna.

Kennsla fer fram í Menntaskólanum í Kópavogi.

Námskeiðin eru kennd á íslensku.

Íslenskustuðningur í námi. Boðið er upp á íslenskukennslu með orðaforða þess efnis sem er verið að fara í þá vikuna.

Skráning

Skráning fer fram á vefnum. Sjá næstu námskeið sem eru á dagskrá hér að neðan.


Hólmfríður Erla Hestnes:

„Það sem kom mér kannski mest á óvart er hvað það er lítið mál að búa til grænmetismat. Ég hélt að þetta væri mikið meira vesen, en svo er þetta bara annað hráefni en sama vinna!“


Námskeiðin eru ætluð félagsmönnum Eflingar sem starfa í eldhúsum og mötuneytum og eru þeim að kostnaðarlausu.

Námskeið á dagskrá

Eldhús og mötuneyti – fagnámskeið III

— Menntaskólinn í Kópavogi, Digranesvegi 51

Kennslutímabil: 10. mars 2025 – 7. maí 2025Kennsludagar: Mánudagar og miðvikudagarKennslutími: 16:00 – 19:00Lengd: Samtals 60 …

10. mar arrow_forward

Eldhús og mötuneyti – fagnámskeið II

— Menntaskólinn í Kópavogi, Digranesvegi 51

Kennslutímabil: 13. janúar 2025 – 5. mars 2025Kennsludagar: Mánudagar og miðvikudagarKennslutími: 16:00 – 19:00Lengd: Samtals 60 …

13. jan arrow_forward

Eldhús og mötuneyti – fagnámskeið I

— Atburður liðinn

Kennslutímabil: 23. september 2024 – 11. nóvember 2024Kennsludagar: Mánudagar og miðvikudagar.Kennslutími: 16:00 – 19:00Lengd: Samtals 60 …

23. sep arrow_forward