10. mar Kl — 15:00

Eldhús og mötuneyti – fagnámskeið III

— Menntaskólinn í Kópavogi, Digranesvegi 51 — 10. mar 2025

Kennslutímabil: 10. mars 2025 – 7. maí 2025
Kennsludagar: Mánudagar og miðvikudagar
Kennslutími: 16:00 – 19:00
Lengd: Samtals 60 kennslustundir.

Ath. Kennslutíminn er til kl 19:30 þegar verkleg kennsla er.

Markmið námskeiðanna er að auka færni starfsfólks til þess að sinna störfum sínum í mötuneytum og eldhúsum. Áhersla er lögð á að auka faglega þekkingu á sviði matvæla- og veitingagreina og gefa fullorðnum tækifæri til fagmenntunar á sviðinu.

Á fagnámskeiði III er áhersla á matseðlagerð og matreiðslu á fæði fyrir fyrir grænkera/vegan.

Nám á fagnámskeiðunum er metið til eininga í námi í matvæla- og veitingagreinum, þar á meðal námi matsveina og matartækna.


Námskeiðin eru ætluð félagsmönnum Eflingar sem starfa í eldhúsum og mötuneytum og eru þeim að kostnaðarlausu.

Skráning er á vefnum, sjá eyðublað hér að neðan. Ef þið þurfið aðstoð við skráninguna getið þið haft samband við Eflingu-stéttarfélag í síma 510 7500.

Umsókn

Eldhús og mötuneyti – fagnámskeið – skráning (veturinn 2023-2024)
Staðfesta netfang :: Confirm email :: Potwierdź email
Ég vil skrá mig á fagnámskeið nr. :: I want to register for vocational course no. :: Chcę zarejestrować się na kurs zawodowy nr.