Orlofshús
Brekkuskógur í Bláskógarbyggð
- Ein vika34.691 kr
- Ein helgi 19.599 kr
- Komutími 17:00
- Brottför 12:00
Húsnæði
3 hús • 94m2 • 3 herbergi • 6 svefnpláss
Aðstaða
- Sjónvarp
- Gasgrill
- Örbylgjuofn
- Uppþvottavél
- Þvottavél
- Þurrkari
- Heitur pottur
Lýsing
Um þrjú hús er að ræða, á Nónhólsbraut 1 og 3 og Heiðarbraut 2. Í húsunum eru þrjú svefnherbergi. Eitt herbergi er með tveimur 90 cm rúmum og tvö herbergi eru með tveimur 80 cm rúmum. Stofa og eldhús sameiginlegt rými og borðstofu. Baðherbergi með sturtu og þvottavél. Svefnpláss er fyrir sex. Sængur og koddar eru fyrir sex manns. Allur helsti útbúnaður fylgir þ.e. sjónvarp, ísskápur, eldavél, örbylgjuofn og gasgrill. Einnig öll ræstiefni og áhöld.
Upplýsingar
Lyklabox – lyklanúmer kemur fram á samningi.
ATH. Gæludýr eru leyfð í Brekkuskógi Nónhólsbraut 3
Tenglar
Annað
Brekkuskógur er kjarri vaxið svæði og einstaklega fallegt þar allt um kring. Ef keyrt er upp fyrir orlofsbyggðina eru skemmtilegar gönguslóðir og er sérstaklega gaman að labba upp að Brúarfossá. Stutt er að fara á Laugarvatn þar sem hægt er að sækja þjónustu, t.d. verslanir, sundlaug, gufubað o.fl. Einnig er stutt að fara um allt Suðurland þar sem margar náttúruperlur landsins er að finna, t.d. Gullfoss og Geysir.
Ef keyrt er frá Reykjavík og um Lyngdalsheiði gegnum Laugarvatn er þetta ca. 1 klst. og 15 mín. akstur en ef farið er um Grímsnes og Grafningshrepp er þetta um 1 ½ klst. akstur. Fólk er beðið um að kanna færð og ástand vega áður en farið er af stað.

Skoða á Google maps:




