Ertu að fara í bústað? Þetta þarftu að vita:
Orlofshús Eflingar er sameign okkar félagsmanna.
Góð umgengni er okkar hagur!
• Munið að hafa leigusamning meðferðis þegar farið er í orlofhús og lesa hann vel yfir. Leigusamning má nálgast rafrænt inn á mitt.efling.is, undir orlofsskostir.
• Á leigusamningi koma fram allar nauðsynlegar upplýsingar og skilmálar sem mikilvægt er að kynna sér vel þegar farið er orlofhús. Þar er að finna upplýsingar um hvar nálgast má lykla, númer á lyklaboxum og öryggishliðum þar sem við á, komu- og brottfarartíma og símanúmer umsjónarmanns.
Símanúmer umsjónarmanns kemur fram á leigusamningi. Lyklar að Hvammi eru afhentir á skrifstofu Eflingar. Á öðrum stöðum þar sem eru lyklabox skiptir komutími minna máli, á leigusamningi er að finna upplýsingar um komutíma, númer á lyklaboxi og öryggishliði þar sem við á.
• Öllum húsum Eflingar fylgja efni til að þrífa, uppþvottalögur og burstar, gólfsápa og wc hreinsir. Gólfþveglar og moppur eru til staðar svo og kústar og ryksuga. Ef eitthvað af þessu vantar þegar komið er í húsið þarf að láta umsjónarmann vita eins fljótt og auðið er svo hægt sé að bregðast við.
• Mikilvægt er að ganga vel frá og þrífa orlofshúsið við brottför. Ef ekki er þrifið nægilega vel að mati umsjónarmanns þarf að greiða þrifagjald. Þrifagjald árið 2025 er 50.000kr* Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og skal þrífa vel.
Við brottför:
– þrífa Við brottför:
– þrífa húsið, grillið og heita pottinn.
– ganga vel frá gluggum og hurðum, að allt sé lokað og læst.
– skila lykli til umsjónarmanns eða í lyklabox. (eftir því sem við á)
– alls ekki taka hita af húsinu við brottför.
• Nauðsynlegt er að taka með lök, sængur- og koddaver, handklæði, viskastykki, borðtuskur, handsápu og salernispappír.
• Orlofshús og íbúðir Eflingar eru með svipuðum búnaði, ætluð fyrir 5 til 10 manns eftir stærð. Öll eldhúsáhöld eiga að vera til staðar; ísskápur, eldavél og örbylgjuofn. Sængur, koddar, barnastóll og barnarúm, sturta, sjónvarp, útvarp og gasgrill. Ef eitthvað af þessu vantar þegar komið er í húsið þarf að láta umsjónarmann vita eins fljótt og auðið er svo hægt sé að bregðast við.
• Leigutaka er óheimilt að framselja leigurétt sinn og dýrahald er bannað í orlofshúsum Eflingar nema að annað sé tekið fram á leigusamningi. Brot á þessum reglum getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útlokaður fá úthlutun framvegis.
• Óheimilt er að hlaða rafmagnsbíla við húsin.
• Leigutaka er óheimilt að framselja leigurétt sinn. Ganga skal vel um svæðið og virða friðhelgi annarra. Öll óþarfa umferð og hávaði eftir kl 24:00 er óheimil. Brot á þessum reglum veldur því að viðkomandi félagsmaður verði útlokaður fá úthlutun framvegis.
*Með fyrirvara um breytingar