Sameiginlegur félagsfundur fyrir alla Eflingarfélaga hjá öryggisfyrirtækjunum verður haldinn fimmtudaginn 5. október klukkan 16:45 í Félagsheimili Eflingar, 4. hæð í Guðrúnartúni 1. Á dagskrá eru:
- Kjara- og réttindamál öryggisvarða.
- Komandi kjarasamningsviðræður við SA.
- Hlutverk trúnaðarmanns og hvernig hann er skipaður.*
- Önnur mál.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar stýrir fundi.
Boðið verður upp á hressingu og drykki. Textatúlkun verður á skjá milli ensku og íslensku.
*Efling – stéttarfélag auglýsir eftir trúnaðarmönnum hjá fyrirtækjum sem starfa á sviði öryggisvörslu. Meiri upplýsingar um trúnaðarmannakosninguna má lesa hér: Auglýsing um trúnaðarmenn og félagsfund hjá öryggisfyrirtækjum.