29. apr Kl — 11:00

Samninganefnd SFV: Undirbúningsfundur 29. apríl

— Atburður liðinn — 29. apr 2024
Af fundi fyrsta kynningarfundi samninganefndar við SFV 18. apríl síðastliðinn.

Boðað er til framhalds undirbúningsfundar fyrir samninganefnd félagsfólks gagnvart SFV (hjúkrunarheimilum).

Fundurinn verður haldinn mánudaginn 29. apríl klukkan 11:00-12:30 í Félagsheimili Eflingar, 4. hæð í Guðrúnartúni 1. Textatúlkun á skjá milli ensku og íslensku og hressing í boði.

Fundurinn er framhald af góðum fundi sem haldinn var 18. apríl. Meginefni fundarins er undirbúningur fyrir smíði kröfugerðar.

Samninganefndarmenn eiga rétt á leyfi úr vinnu án launaskerðingar til að sækja fundinn, en þurfa að tilkynna yfirmanni með eðlilegum fyrirvara.

Meðlimir í samninganefnd eru beðnir um að láta vita hvort þeir komast á fundinn eða ekki með eyðublaðinu hér fyrir neðan:

Please select a valid form

Þau sem hafa tilnefnt sig í samninganefnd hafa fengið tölvupóst með auglýsingu um fundinn. (Enn er opið fyrir tilnefningar og eyðublað til að tilnefna sig er hér.)