Aðalfundur Eflingar – stéttarfélags 2022 verður haldinn föstudaginn 8. apríl klukkan 20:00 á Grand hótel Reykjavík í Gullteig.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu
- Lýst kjöri stjórnar, trúnaðarráðs, stjórna sjóða og skoðunarmanna reikninga
- Lagabreytingar ef tillögur liggja fyrir
- Ákvörðun félagsgjalds, ef tillaga um breytingu liggur fyrir
- Önnur mál
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Eflingarfélagar eru vinsamlega beðnir að skrá sig á fundinn á Mínum síðum eigi síðar en 6. apríl.
Athygli er vakin á því að aðeins fullgildir Eflingarfélagar hafa setu- og atkvæðisrétt á fundinum. Hægt er að sækja um fullgildingu félagsaðildar í gegnum Mínar síður Eflingar.
Allir Eflingarfélagar eru hvattir til að mæta!