Aðalfundur Eflingar – stéttarfélags

Aðalfundur Eflingar – stéttarfélags 2022 verður haldinn föstudaginn 8. apríl klukkan 20:00 á Grand hótel Reykjavík í Gullteig.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. 

Dagskrá: 

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu
  3. Lýst kjöri stjórnar, trúnaðarráðs, stjórna sjóða og skoðunarmanna reikninga
  4. Lagabreytingar ef tillögur liggja fyrir
  5. Ákvörðun félagsgjalds, ef tillaga um breytingu liggur fyrir
  6. Önnur mál

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Eflingarfélagar eru vinsamlega beðnir að skrá sig á fundinn á Mínum síðum eigi síðar en 6. apríl. 

Athygli er vakin á því að aðeins fullgildir Eflingarfélagar hafa setu- og atkvæðisrétt á fundinum. Hægt er að sækja um fullgildingu félagsaðildar í gegnum Mínar síður Eflingar. 

Allir Eflingarfélagar eru hvattir til að mæta!