Trúnaðarmenn

Upplýsingar um trúnaðarmannanámskeið.

Samkvæmt kjarasamningum á að vera trúnaðarmaður á öllum vinnustöðum með 5 eða fleiri Eflingarfélaga. Trúnaðarmenn gegna mjög mikilvægu hlutverki í starfi Eflingar og félagið leggur mikla áherslu á að fjölga þeim, sem og að veita þeim öfluga fræðslu, þjálfun og stuðning.

Hlutverk

Trúnaðarmaður er tengiliður Eflingarfélaga á vinnustað við stéttarfélagið þeirra. Hlutverk hans/hennar er að gæta þess að farið sé eftir kjarasamningum og að lög og réttindi séu virt, og að aðstoða félagsmenn á sínum vinnustað við úrlausn réttindamála þegar við á. Trúnaðarmaðurinn miðlar upplýsingum frá félaginu til félagsmanna, og upplýsir félagið um stöðu mála á sínum vinnustað eftir því sem þörf krefur.

Trúnaðarmaður er kjörinn fulltrúi

Starfsfólk á hverjum vinnustað kýs sér trúnaðarmann til tveggja ára í senn. Ef aðeins einn býður sig fram er viðkomandi sjálfkjörinn. Eftir kosningu fær trúnaðarmaðurinn og vinnuveitandi hans senda staðfestingu á skipun og trúnaðarmaðurinn byrjar að sitja trúnaðarmannanámskeið á vegum félagsins.

Er enginn trúnaðarmaður á þínum vinnustað?

Ef enginn trúnaðarmaður er á þínum vinnustað og þú vilt bjóða þig fram í það hlutverk eða skipuleggja kosningu, viljum við biðja þig um að hafa samband við svið fræðslu- og félagsmála í síma 510 7500 eða senda tölvupóst á felagsmal@efling.is. Skristofa Eflingar aðstoðar við utanumhald og framkvæmd trúnaðarmannakosninga.

Hér má nálgast sniðmát fyrir auglýsingu eftir trúnaðarmönnum til að hengja upp á vinnustaðnum og dreifa til vinnufélaga.
Ef 5-49 Eflingarfélagar starfa á vinnustaðnum heimilar kjarasamningurinn að auglýsa eftir 1 trúnaðarmanni.
Ef 50-119 Eflingarfélagar starfa á vinnustaðnum heimilar kjarasamningurinn að auglýsa eftir 2 trúnaðarmönnum.
Ef 120 eða fleiri Eflingarfélagar starfa á vinnustaðnum heimilar kjarasamningurinn að auglýsa eftir 3 trúnaðarmönnum.

Eftir kosningu trúnaðarmanna þarf að fylla inn og skila eftirfarandi eyðublaði til Eflingar – tilkynning um trúnaðarmann.

Trúnaðarmaður nýtur verndar

Trúnaðarmanni má ekki segja upp vegna starfa hans sem trúnaðarmanns og hann gengur fyrir öðrum um vinnu þurfi atvinnurekandi að fækka starfsfólki.

Fræðsla

Trúnaðarmenn þurfa að sækja námskeið á skipunartíma sínum og ber atvinnurekanda að tryggja að þeim sé það mögulegt án launaskerðingar.

Námskeiðin miða að því að bæta við hæfni trúnaðarmanna og þekkingu með því að fræðast um:

  • Kjarasamninga
  • Læra að lesa launaseðla
  • Verkalýðsbaráttan og samningaviðræður
  • Hlutverk verkalýðsfélaga, saga og starfssemi þeirra
  • Lög og réttindi fólks á atvinnumarkaði

Námskeiðin taka einnig fyrir ýmsa aðra þætti sem gera trúnaðarmenn betur í stakk búna til að sinna hlutverki sínu.

Nánar um námskeiðin hér.

Reglugerð um skipun og störf trúnaðarmanna

Félagið hefur gert sérstaka reglugerð þar sem farið er yfir þær viðmiðanir sem gilda um skipun og störf trúnaðarmanna. Hún byggir á landslögum, kjarasamningum og lögum Eflingar. Lesa reglugerðina á PDF- formi hér.