Launakjör og réttindi
Verkamaður III (með flokkstjórn)
Lágmarkslaun Launaflokkur 127
Grunnlaun | Persónuálag 2% | Persónuálag 4% | Persónuálag 6% | Persónuálag 8% | Persónuálag 10% | Persónuálag 12% | Persónuálag 14% | Persónuálag 16% | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Mánaðarlaun | 469.910 kr | 479.308 kr | 488.706 kr | 498.105 kr | 507.503 kr | 516.901 kr | 526.299 kr | 535.697 kr | 545.096 kr |
Dagvinna | 2.889,95 kr | 2.947,74 kr | 3.005,54 kr | 3.063,35 kr | 3.121,14 kr | 3.178,94 kr | 3.236,74 kr | 3.294,54 kr | 3.352,34 kr |
Yfirvinna 1 | 4.410,11 kr | 4.498,31 kr | 4.586,51 kr | 4.674,72 kr | 4.762,92 kr | 4.851,12 kr | 4.939,32 kr | 5.027,52 kr | 5.115,73 kr |
Yfirvinna 2 | 4.880,02 kr | 4.977,61 kr | 5.075,21 kr | 5.172,82 kr | 5.270,42 kr | 5.368,02 kr | 5.465,62 kr | 5.563,21 kr | 5.660,82 kr |
Stórhátíðarkaup | 6.461,26 kr | 6.590,49 kr | 6.719,71 kr | 6.848,94 kr | 6.978,17 kr | 7.107,39 kr | 7.236,61 kr | 7.365,83 kr | 7.495,07 kr |
33% álag | 989,84 kr | 1.009,64 kr | 1.029,44 kr | 1.049,24 kr | 1.069,03 kr | 1.088,83 kr | 1.108,63 kr | 1.128,42 kr | 1.148,22 kr |
55% álag | 1.633,41 kr | 1.666,08 kr | 1.698,74 kr | 1.731,41 kr | 1.764,08 kr | 1.796,75 kr | 1.829,42 kr | 1.862,09 kr | 1.894,76 kr |
65% álag | 1.930,39 kr | 1.969,00 kr | 2.007,60 kr | 2.046,21 kr | 2.084,82 kr | 2.123,43 kr | 2.162,04 kr | 2.200,65 kr | 2.239,26 kr |
75% álag | 2.227,37 kr | 2.271,92 kr | 2.316,47 kr | 2.361,02 kr | 2.405,57 kr | 2.450,11 kr | 2.494,66 kr | 2.539,21 kr | 2.583,76 kr |
90% álag | 2.672,85 kr | 2.726,31 kr | 2.779,76 kr | 2.833,22 kr | 2.886,68 kr | 2.940,13 kr | 2.993,59 kr | 3.047,05 kr | 3.100,51 kr |
120% álag | 3.563,80 kr | 3.635,08 kr | 3.706,34 kr | 3.777,62 kr | 3.848,90 kr | 3.920,17 kr | 3.991,45 kr | 4.062,73 kr | 4.134,01 kr |
165% álag | 4.900,22 kr | 4.998,23 kr | 5.096,22 kr | 5.194,23 kr | 5.292,24 kr | 5.390,24 kr | 5.488,25 kr | 5.586,26 kr | 5.684,27 kr |
Önnur kjör og réttindi
Veikindaréttur
- 0–3 mánuðir í starfi = 14 dagar
- Næstu 3 mánuði í starfi = 35 dagar
- Eftir 6 mánuði í starfi = 119 dagar
- Eftir 1 ár í starfi = 133 dagar
- Eftir 7 ár í starfi = 175 dagar
- Eftir 12 ár í starfi = 273 dagar
- Eftir 18 ár í starfi = 360 dagar
- Laun greiðast ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa nema ef um slysalaun eru að ræða.
- Við slysalaun bætast 13 vikur á daglaunum eða 91 dagur nema við 273 og 360 daga.
Orlofsréttur hjá SÍS
Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl. Lágmarksorlof er 30 dagar eða 240 klst. Allir …
- Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl.
- Lágmarksorlof er 30 dagar eða 240 klst.
- Allir eiga rétt á lágmarksorlofi, en launalausu hafi þeir ekki áunnið sér réttinn. Orlofsfé er 13,04%.
- Veikindi og fæðingarorlof allt að 6 mánuðum telst til ávinnslutíma.
- Tímabil sumarorlofs er 15. maí til 30. september og á starfsmaður rétt á að fá allt orlof sitt á sumarorlofstíma verði því við komið.
- Þeir starfsmenn sem samkvæmt skriflegri ósk vinnuveitenda fá ekki fullt orlof á sumarorlofstímabili, skulu fá 25% lengingu á þeim hluta orlofstímans sem veittur er utan framangreinds tíma.
Veikindi í orlofi
- Veikist starfsmaður í orlofi, telst sá tími sem veikindum nemur ekki til orlofs, enda sanni starfsmaður með læknisvottorði að hann geti ekki notið orlofs.
- Tilkynna skal yfirmanni strax með símtali eða símskeyti ef um veikindi eða slys í orlofi er að ræða.
Uppsagnarfrestur
Áminning
- Uppsögn miðast við mánaðamót.
- Reynslutími er almennt 3 mán. –Uppsagnarfestur á reynslutíma er einn mánuður.
- Að loknum reynslutíma er uppsagnarfrestur þrír mánuðir
- Uppsagnarfrestur eftir 10 ára samfellt starf er : –Við 55 ára lífaldur 4 mánuðir –Við 60 ára lífaldur 5 mánuðir –Við 63 ára lífaldur 6 mánuðir
- Starfsmaður getur hins vegar sagt upp starfi sínu með 3ja mánaða fyrirvara.
Áminning
- Yfirmanni er skylt að veita starfsmanni áminningu áður en til uppsagnar kemur.
- Ástæður geta verið óstundvísi, vanræksla, óhlýðni við boð eða bann yfirmanns, vankunnátta eða óvandvirkni í starfi, ölvun, athafnir sem þykja ósæmilegar, óhæfilegar og ósamrýmanlegar starfinu.
- Áminningu þarf ekki ef uppsögn er vegna samdráttar, skipulagsbreytinga eða hagræðingar á stofnun.
Desemberuppbót
Starfsmaður í 100% starfshlutfalli fær greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag.
Hafi starfsmaður látið af störfum á árinu vegna aldurs skal hann fá greidda persónuuppbót hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Desemberuppbót er föst fjárhæð og orlof reiknast ekki ofan á uppbótina.
Desemberuppbót er greidd m.v. starfshlutfall og starfstíma.
Desemberuppbót á að gera upp við starfslok.
1. desember 2021 121.700 kr.
1. desember 2022 124.750 kr.
1. desember 2023 131.000 kr.
Orlofsuppbót
Orlofsuppbót á að koma til greiðslu 1. maí ár hvert.
Starfsmaður í 100% starfshlutfalli fær greidda persónuuppbót 1. maí ár hvert. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag.
Hafi starfsmaður látið af störfum á árinu vegna aldurs skal hann fá greidda persónuuppbót hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Orlofsuppbót er föst fjárhæð og orlof reiknast ekki ofan á orlofsuppbótina.
Full orlofsuppbót 2021 er 51.700 kr.
Full orlofsuppbót 2022 er 53.000 kr.
Full orlofsuppbót 2023 er 55.700 kr.