Réttindi í sjóðum Eflingar við atvinnumissi og gagnlegar ábendingar um félagslega og fjárhagslega aðstoð

Ertu atvinnulaus – áttu rétt á styrk?

– Gættu réttinda þinna og nýttu þá þjónustu og sjóði sem Efling hefur upp á að bjóða.

Þeir félagsmenn Eflingar sem verða fyrir atvinnumissi og þiggja atvinnuleysisbætur þurfa að halda áfram að greiða félagsgjald af atvinnuleysisbótum til Eflingar. Með því viðhalda þeir áunnum réttindum í sjóðum félagsins og geta áfram sótt um styrki í sjúkra- og fræðslusjóð og pantað sér orlofshús.

Sjúkrasjóður

  • Þú viðheldur rétti til að sækja um styrki hafir þú greitt samfellt í sex mánuði af launaðri vinnu til Eflingar áður en þú varðst atvinnulaus.
  • Þú viðheldur rétti til að sækja um sjúkradagpeninga hafir þú greitt samfellt í sex mánuði af launaðri vinnu til Eflingar áður en þú varðst atvinnulaus.
  • Verðir þú veikur á atvinnuleysisbótum getur þú átt rétt á sjúkradagpeningum í allt að þrjá mánuði.

Sjá nánar

Fræðslusjóður

  • Til að sækja um styrk þarft þú að hafa greitt í 6 mánuði af síðustu 24 mánuðum og að hafa verið félagsmaður á þeim tíma sem nám/námskeið var sótt.
  • Eftir að þú hættir að vinna og greiða til Eflingar hefur þú 3 mánuði frá því þú hættir að greiða til félagsins til að skila inn umsókn.
  • Ef þú ert á skrá hjá Vinnumálastofnun þarftu að skila inn staðfestingu um styrkupphæð frá stofnuninni með umsókn, óháð því hvort styrkur frá VMST var veittur eða ekki .

Sjá nánar

Orlofssjóður

  • Til að kaupa kort, gjafabréf og fá niðurgreiðslu á gistingu innanlands þarftu að hafa greitt til Eflingar samfellt í sex mánuði.
  • Ef þú ert á atvinnuleysisbótum þarftu að halda áfram að greiða til Eflingar til að viðhalda réttindum til að leigja orlofshús.

Sjá nánar

Við minnum einnig á að nýta ykkur þá þjónustu sem ykkur stendur til boða hjá Eflingu.

Má þar benda á:

  • Lögfræðiaðstoð fyrir félagsmenn Eflingar á þriðjudögum , Guðrúnartúni 1, s. 510 7500.
  • Kjaramálasvið aðstoðar ef þú telur á þér brotið.

Ráðgjafastofa innflytjenda

  • Ertu ný flutt/ur til Íslands? Eða ennþá að aðlagast? Ertu með spurningu eða vantar þig aðstoð?

Hér geta inn­flytj­end­ur sem setj­ast að hér á landi fengið upp­lýs­ing­ar um allt sem við kem­ur rétt­ind­um þeirra og skyld­um sem ný­bú­ar á Íslandi.
Sími: 456 7555

Ertu í fjárhagsvanda?

Við fáum sífellt fleiri fyrirspurnir frá Eflingarfélögum vegna seinkunar í afgreiðslu umsókna um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun. Margir hafa misst vinnuna og eru komnir í fjárhagsvandræði vegna heimsfaraldursins. Við viljum gjarnan hjálpa þessum hóp eins og við getum.

Jafnvel þó við getum lítið gert til að breyta álaginu á Vinnumálastofnun getum við veitt hjálparhönd með öðrum hætti.  Ef þig grunar að brotið hafi verið á kjarasamningsbundnum réttindum þínum og vinnuveitandi þinn skuldi þér laun ættir þú að hafa samband við skrifstofu Eflingar (Kjaramál).

Við viljum vekja athygli þína á á lögbundinni skyldu sveitarfélagsins þíns til að veita einstaklingum í neyð fjárhagsaðstoð og að þú getur sótt um fjárhagsaðstoð til þess ef þú átt ekki rétt á atvinnuleysisbótum.

Hér má sækja um fjárhagsaðstoð:

Þjónustumiðstöðvar í Reykjavík

Þjónustumiðstöðvar í Reykjavík:

Hraunbær 115, 110 Reykjavík         phone tel. 411 1200    email     arbaer-grafarholt@reykjavik.is

Álfabakki 10, 109 Reykjavík             phone tel. 411 1300    email     breidholt@reykjavik.is

Gylfaflöt 5, 112 Reykjavík                phone tel. 411 1400    email      midgardur@reykjavik.is

Efstaleiti 1, 103 Reykjavík                phone tel. 411 1500    email      laugardalur.haaleiti@reykjavik.is

Laugavegur 77, 101 Reykjavík         phone tel. 411 1600     email     vmh@reykjavik.is

Umsóknareyðublað fyrir fjárhagslegum styrk: https://reykjavik.is/thjonusta/fjarhagsadstod

Þjónustumiðstöðvar í Kópavogi

Kópavogur:

Digranesvegur 1, 200 Kópavogur sími: 441 0000 netfang:  kopavogur@kopavogur.is

Umsókn: https://www.kopavogur.is/is/ibuar/velferd/felagslegur-studningur/fjarhagsadstod

Þjónustumiðstöð á Seltjarnarnesi

Seltjarnarnes:

Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnes tel. 595 9100 email: postur@seltjarnarnes.is

Umsókn: http://www.seltjarnarnes.is/thjonusta/felagsthjonusta/adstod/

Þjónustumiðstöð í Mosfellsbæ

Mosfellsbær:

Þverholti 2, 270 Mosfellsbær tel. 525 6700 email. mos@mos.is

Umsókn: https://www.mos.is/thjonusta/felagsthjonusta/fjarhagsadstod/

Þjónustumiðstöð í Hveragerði og Ölfus

Hveragerði:

Breiðumörk, 810 Hveragerði tel. 483 4000 email. mottaka@hveragerdi.is

Umsókn: https://www.hveragerdi.is/is/thjonusta/velferd-og-fjolskylda/fjarhagsadstod

Ölfus:

Hafnarberg 1, 815 Þorlákshöfn Tel: (+354) 480 3800 email: olfus@olfus.is

Umsókn: https://www.olfus.is/is/thjonustan/velferd-og-fjolskylda/fjarhagsadstod

Sjálfstæð félagasamtök

Sjálfstæð félagasamtök aðstoða einnig og má þá nefna:

Mæðrastyrksnefnd – Hátúni 12b, 105 Reykjavík

Mæðrastyrksnefnd er með matarúthlutanir til fólks í fjárhagsvanda vikulega. Næsta úthlutun  er 23. júní fyrir einstaklinga og 24 júní fyrir fjölskyldur kl 12-14. Skrifstofan er opin alla daga frá 10-15. Það eru ekki einungis mæður sem geta nýtt sér þessa þjónustu heldur allt fólk í fjárhagsvanda. Upplýsingar má finna á https://www.maedur.is

Fjölskylduhjálp

Aðstoða fátækt fólk með matvæli, lyf, hársnyrtingu, fatnað, ungbarnavörur og leikföng. Fylgist með næstu úthlutun á https://fjolskylduhjalp.is/  eða facebook síðu þeirra https://www.facebook.com/fjolskylduhjalp/ Sækja þarf um úthlutun í tölvupósti hjalp@fjolskylduhjalp.is eða í síma 892 9603.

Hjálparsími Rauða krossins 1717

Hjálparsíminn er alltaf opinn, trúnaði og nafnleynd er heitið og hann er ókeypis. Þjálfaðir og reynslumiklir sjálfboðaliðar á öllum aldri sjá um að svara þeim samtölum sem 1717 berast.


Stöndum saman gegn ofbeldi – heimilið á að vera griðarstaður

Ert þú í aðstæðum þar sem þú telur heilsu þinni eða öryggi ógnað vegna ofbeldis af  hendi nákomins fjölskyldumeðlims? Á Íslandi býðst fólki sem býr við ofbeldi fjölbreytt ráðgjöf og stuðningur til þess að komast út úr slíkum aðstæðum.

Ofbeldi getur verið af margvíslegum toga og í hverju tilfelli er oft um fleiri en eina tegund ofbeldis að ræða. Ofbeldið getur verið líkamlegt, andlegt, kynferðislegt, fjárhagslegt og stafrænt auk ýmis konar hegðunar sem felur í sér ógn, hótun, stjórnun og/eða þvinganir. Ofbeldi í nánum samböndum er ferli sem oft er lýst sem ákveðnum ofbeldishring þar sem spennan í sambandinu magnast upp, endar með einhvers konar sprengingu þar sem ofbeldið versnar, svo fellur allt í dúnalogn þegar gerandi biðst afsökunar og jafnvel lofar að gera þetta aldrei aftur. Eftir það fylgir oft tímabil þar sem allt fellur í ljúfa löð. Svo byrjar spennan aftur að byggjast upp og hringurinn rúllar.

Það eru ótal leiðir til þess að fá aðstoð og margt af því er hægt að nýta sér ókeypis. Eina sem þú þarf að gera er að hafa samband og segjast þurfa hjálp. Þú getur hringt of sjaldan en aldrei of oft.

Kvennaathvarfið

Kvennaathvarfið er staður þar sem konur geta leitað eftir fjölbreyttri ráðgjöf og aðstoða vegna heimilisofbeldis. Allt frá því að fá aðstoð í gegnum síma sem aðstandendur til þess að dvelja þar einar eða með börnum sínum til að flýja ofbeldi.

Bjarkarhlíð

Bjarkarhlíð er ráðgjafamiðstöð fyrir þolendur hvers kyns ofbeldis. Sérstaklega skal bent á að í Bjarkarhlíð er starfandi lögreglukona sem sérhæfir sig í að taka á móti þolendum ofbeldis. Hjá henni er hægt að fá allar upplýsingar og ráðgjöf.

Stígamót

Stígamót veitir ráðgjöf án endurgjalds til fólks sem hefur lent í kynferðislegu ofbeldi.

Réttindagæslumenn fatlaðra

Réttindagæslumenn fatlaðra aðstoða fólk með fötlun í ofbeldismálum.

112 neyðarsími

112 hefur sérþjálfað starfsfólk í því að taka við símtölum frá þolendum ofbeldis. Ekki hika við að hafa samband ef hætta steðjar að.

Hjálparsíminn 1717

Hjálparsíminn 1717. Ekkert vandamál er of stórt eða lítið fyrir Hjálparsímann 1717 og netspjall Rauða krossins. Þjálfaðir og reynslumiklir sjálfboðaliðar á öllum aldri sjá um að svara þeim símtölum og skilaboðum í gegnum netspjall.

Heimilisfriður

Heimilisfriður veitir einstaklingum ráðgjöf sem vilja ná stjórn á því ofbeldi sem þau beita. Þjónustan er veitt gegn vægu gjaldi.