Geiri
Hjúkrunarheimili SFV
Hér er eingöngu átt við hjúkrunarheimili sem eru undir kjarasamningi Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu; Dvalarheimilið Ás, Heilsuvernd Vífilsstöðum, Eir, Grund,Hamrar hjúkrunarheimili, Hlíðabær, Hrafnista, Múlabær, Mörk, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilið, Skjól, Skógarbær, Sóltún, Sunnuhlíð (Vigdísarholt), Fríðuhús og Drafnarhús.
Starfsfólk á hjúkrunarheimilunum Seljahlíð og Droplaugarstöðum eru undir kjarasamningi Eflingar og Reykjavíkurborgar.
Réttindi
Orlofsréttur
Veikindi í orlofi
- Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl.
- Lágmarksorlof er 30 dagar eða 216 klst. (miðað við 36 stunda vinnuviku og hlutfallslega sé búið að stytta vinnutímann).
- Allir eiga rétt á lágmarksorlofi, en launalausu hafi þeir ekki áunnið sér réttinn. Orlofsfé er 13,04%.
- Veikindi og fæðingarorlof allt að 6 mánuðum telst til ávinnslutíma.
- Tímabil sumarorlofs er 15. maí til 30. september og á starfsmaður rétt á a.m.k. 160 stunda orlofi á sumarorlofstíma.
- Sé orlof eða hluti orlofs tekið utan sumarorlofstímabils, að skriflegri beiðni yfirmanns, skal sá hluti orlofsins lengjast um 25%.
Veikindi í orlofi
- Veikist starfsmaður í orlofi, telst sá tími sem veikindum nemur ekki til orlofs, enda sanni starfsmaður með læknisvottorði að hann geti ekki notið orlofs.
- Tilkynna skal yfirmanni strax með símtali eða símskeyti ef um veikindi eða slys í orlofi er að ræða.
Uppsagnarfrestur
Áminning
- Uppsögn miðast við mánaðamót.
- Reynslutími er almennt 3 mán. –Uppsagnarfestur á reynslutíma er einn mánuður.
- Að loknum reynslutíma er uppsagnarfrestur þrír mánuðir
- Uppsagnarfrestur eftir 10 ára samfellt starf er : –Við 55 ára lífaldur 4 mánuðir –Við 60 ára lífaldur 5 mánuðir –Við 63 ára lífaldur 6 mánuðir
- Starfsmaður getur hins vegar sagt upp starfi sínu með 3ja mánaða fyrirvara.
Áminning
- Yfirmanni er skylt að veita starfsmanni áminningu áður en til uppsagnar kemur.
- Ástæður geta verið óstundvísi, vanræksla, óhlýðni við boð eða bann yfirmanns, vankunnátta eða óvandvirkni í starfi, ölvun, athafnir sem þykja ósæmilegar, óhæfilegar og ósamrýmanlegar starfinu.
- Áminningu þarf ekki ef uppsögn er vegna samdráttar, skipulagsbreytinga eða hagræðingar á stofnun.
Desemberuppbót
Þeir sem eru við störf fyrstu viku nóvember eða hafa starfað í 13 vikur samfellt á árinu skulu fá greidda desemberuppbót 1. desember ár hvert. Full uppbót miðast við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október.
Desemberuppbót er föst fjárhæð og orlof reiknast ekki ofan á uppbótina.
Desemberuppbót er greidd m.v. starfshlutfall og starfstíma.
Desemberuppbót á að gera upp við starfslok.
Uppbótin er:
Á árinu 2024 106.000 kr.
Á árinu 2025 110.000 kr.
Á árinu 2026 114.000 kr.
Á árinu 2027 118.000 kr.
Orlofsuppbót
Orlofsuppbót á að koma til greiðslu 1. júní ár hvert.
Þeir sem hafa starfað 13 vikur samfellt á orlofsárinu eða eru í starfi til 30. apríl eiga rétt á uppbót.
Þeir sem hafa verið í fullu starfi á orlofsárinu, 1. maí – 30. apríl hvert ár, eiga rétt á fullri uppbót annars greiðist hún í samræmi við starfshlutfall og starfstíma. Orlofsuppbót er föst fjárhæð og orlof reiknast ekki ofan á orlofsuppbótina.
Orlofsuppbót á að gera upp við starfslok.
Uppbótin er:
Á árinu 2024 58.000 kr.
Á árinu 2025 60.000 kr.
Á árinu 2026 62.000 kr.
Á árinu 2027 64.000 kr.
Launahækkanir á samningstímabili
- apríl 2024 3,25% eða 23.750 kr.
- apríl 2025 3,50% eða 23.750 kr.
- apríl 2026 3,50% eða 23.750 kr.
- apríl 2027 3,50% eða 23.750 kr.