Launakjör og réttindi
Fiskitæknar sem lokið hafa námi frá Fisktækniskóla Íslands í Grindavík
Lágmarkslaun Launaflokkur 13
Byrjunarlaun | 1 ár | 3 ár | 5 ár | |
---|---|---|---|---|
Mánaðarlaun | 423.725 kr | 427.963 kr | 434.382 kr | 443.070 kr |
Dagvinna | 2.444,61 kr | 2.469,06 kr | 2.506,10 kr | 2.556,22 kr |
Yfirvinna | 4.400,38 kr | 4.444,40 kr | 4.511,06 kr | 4.601,28 kr |
Stórhátíðarkaup | 5.826,22 kr | 5.884,49 kr | 5.972,75 kr | 6.092,21 kr |
Önnur kjör og réttindi
Laun ungmenna
Starfsmenn 16 og 17 ára sem vinna skv. bónuskerfi í fiskvinnslu, eða í fiskvinnslu þar sem …
Starfsmenn 16 og 17 ára sem vinna skv. bónuskerfi í fiskvinnslu, eða í fiskvinnslu þar sem tekin hefur verið upp föst bónusgreiðsla vegna þess að afköst eru vélstýrð, skulu ekki taka lægri laun en skv. 18 ára taxta.
Starfsmenn 18 og 19 ára í sömu störfum skulu ekki taka lægri laun en byrjunarlaun 20 ára.
Uppsagnarfrestur
Fyrstu tvær vikurnar í starfi er enginn uppsagnarfrestur. Eftir tveggja vikna samfellt starf hjá sama atvinnurekanda: …
Fyrstu tvær vikurnar í starfi er enginn uppsagnarfrestur.
Eftir tveggja vikna samfellt starf hjá sama atvinnurekanda: 12 almanaksdagar.
Eftir 3 mánuði samfellt í starfi hjá sama atvinnurekanda: 1 mánuður m.v. mánaðamót.
Eftir 2 ár samfellt í starfi hjá sama atvinnurekanda: 2 mánuðir m.v. mánaðamót
Eftir 3 ár samfellt í starfi hjá sama atvinnurekanda: 3 mánuðir m.v. mánaðamót.
Skýring: Sé starfsmanni sem unnið hefur hjá atvinnurekanda samfellt í tvö ár sagt upp til dæmis 12. mars, þá hefur hann bæði rétt á og skyldu til að vinna í tvo mánuði frá mánaðamótunum mars/apríl. Væri hans síðasti starfsdagur því 31. maí.
Eftir 10 ára starf hjá sama fyrirtæki öðlast starfsmaður við;
- 55 ára aldur – 4 mánaða uppsagnarfrestur m.v. mánaðamót.
- 60 ára aldur – 5 mánaða uppsagnarfrestur m.v. mánaðamót.
- 63 ára aldur – 6 mánaða uppsagnarfrestur m.v. mánaðamót.
Starfsmaður getur hins vegar sagt upp starfi sínu með þriggja mánaða fyrirvara.
Uppsagnir skulu vera skriflegar.
Atvinnurekanda ber að greiða áunnið ógreitt orlof og er það oftast gert í lok uppsagnarfrests. Atvinnurekandi þarf einnig að greiða orlofs- og desemberuppbætur í samræmi við starfstíma og starfshlutfall á árinu.
Veikindaréttur/veikindaréttur v. barna
Á fyrsta starfsári hjá sama atvinnurekanda greiðast tveir dagar á staðgengislaunum fyrir hvern unninn mánuð. Eftir eins árs samfellt starf …
Á fyrsta starfsári hjá sama atvinnurekanda greiðast tveir dagar á staðgengislaunum fyrir hvern unninn mánuð.
Eftir eins árs samfellt starf hjá sama vinnuveitanda greiðist einn mánuður með staðgengislaunum.
Eftir tveggja ára samfellt starf hjá sama vinnuveitanda greiðist einn mánuður með staðgengislaunum og einn mánuður á dagvinnulaunum.
Eftir þriggja ára samfellt starf hjá sama vinnuveitanda greiðist einn mánuður með staðgengislaunum og tveir mánuðir á dagvinnulaunum.
Eftir fimm ára samfellt starf hjá sama vinnuveitanda greiðist einn mánuður með staðgengislaunum, einn mánuður með fullu dagvinnukaupi (þ.e. dagvinnulaun, bónus og vaktaálög) og tveir mánuðir á dagvinnulaunum.
Ath. eftir 5 ára starf hjá sama fyrirtæki halda starfsmenn hluta af veikindarétti sínum þó þeir fari til annarra starfa.
Veikindaréttur er heildarréttur á hverju 12 mánaða tímabili.
Launahugtök:
Staðgengislaun – eins og mætt hefði verið til vinnu
Dagvinnukaup – dagvinna, álög o.s.frv. en ekki yfirvinna
Dagvinnulaun – tímafjöldi sem unninn hefði verið greiddur með dagvinnu, þ.e. ekki álög og yfirvinna.
Veikindaréttur vegna barna
Fyrstu 6 mánuði í starfi: 2 dagar fyrir hvern unninn mánuð
Eftir 6 mánuði í starfi: 12 dagar á hverju 12 mánaðara tímabili.
Veikindaréttur barna miðast við börn yngri en 13 ára. Á einnig við um börn undir 16 ára aldri sem þurfa að leggjast inn á sjúkrahús í einn dag eða lengur.
Orlofsréttur
Lágmarksorlof er 24 virkir dagar. Orlofslaun eru 10,17% af öllum launum. Eftir 5 ár í sama fyrirtæki …
Lágmarksorlof er 24 virkir dagar. Orlofslaun eru 10,17% af öllum launum.
- Eftir 5 ár í sama fyrirtæki eða 10 ár í sömu starfsgrein skal starfsmaður hafa 25 daga orlof og skulu orlofslaun vera 10,64%.
- Eftir 10 ár í sama fyrirtæki skal starfsmaður hafa 30 daga orlof og skulu orlofslaun vera 13,04%.
Orlofsréttur reiknast frá 1. maí – 30. apríl ár hvert. Sumarorlofstímabil er frá 2. maí til 30. september.
Áunninn réttur vegna starfa í sama fyrirtæki endurnýjast eftir þriggja ára starf hjá nýju fyrirtæki, enda hafi hann verið sannreyndur.
Stórhátíðardagar og aðrir frídagar
Stórhátíðardagar Nýársdagur Föstudagurinn langi Páskadagur Hvítasunnudagur 17. júní Aðfangadagur, eftir kl. 12.00 Jóladagur Gamlársdagur, eftir kl. …
Stórhátíðardagar
- Nýársdagur
- Föstudagurinn langi
- Páskadagur
- Hvítasunnudagur
- 17. júní
- Aðfangadagur, eftir kl. 12.00
- Jóladagur
- Gamlársdagur, eftir kl. 12.00
Öll aukavinna á stórhátíðardögum greiðist með tímakaupi, sem er 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu. Aðrar reglur geta gilt um starfsfólk í vaktavinnu.
Aðrir frídagar
- Skírdagur
- Annar í páskum
- Uppstigningardagur
- Sumardagurinn fyrsti
- 1. maí
- Annar í hvítasunnu
- Annar í jólum
- Fyrsti mánudagur í ágúst
Öll aukavinna á öðrum frídögum er greidd með yfirvinnukaupi, 80% hærra en dagvnnukaup eða 1,0385% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu. Aðrar reglur geta gilt um starfsfólk í vaktavinnu.
Tekjutrygging
Lágmarkstekjur fyrir fullt starf, fullar 173,33 unnar stundir á mánuði (40 stundir á viku), skulu vera sem hér segir fyrir þá starfsmenn sem eftir að 18 ára aldri er náð hafa starfað a.m.k sex mánuði hjá sama fyrirtæki (þó að lágmarki 900 stundir):
- apríl 2019 kr. 317.000 á mánuði
- apríl 2020 kr. 335.000 á mánuði
- janúar 2021 kr. 351.000 á mánuði
- janúar 2022 kr. 368.000 á mánuði
Lágmarkstekjutrygging þarf þó ekki að hafa áhrif á lágmarkstaxta þó það gæti einfaldað launaútreikning atvinnurekenda. Eins og áður segir miðast lágmarkstekjur við 18 ára aldur og sex mánaða starfsaldur. Eftir að þeim skilyrðum hefur verið náð hefur starfsmaður rétt á að fá greiddar lágmarkstekjur fyrir fullt starf óháð launataxta hans. Sem dæmi má nefna að sé launataxti, mánaðarlaun, starfsmanns í fullu starfi 351.000 kr. eftir 1. janúar 2021, hann orðinn 18 ára og hefur unnið hjá fyrirtækinu í sex mánuði þá gætu laun hans á launaseðli litið svona út:
Mánaðarlaun: 340.000 kr.
Tekjutrygging: 11.000 kr.
Laun samtals: 351.000 kr.
Vert er að taka fram að skv. lögum um starfsmenn í hlutastörfum nr. 10/2004 þá skulu starfsmenn í hlutastörfum ,,ekki njóta hlutfallslega lakari kjara.“
Lágmarkshvíld
Vinnutíma skal haga þannig að á hverjum sólarhring, reiknað frá byrjun vinnudags, fái starfsmaður a.m.k. 11 …
Vinnutíma skal haga þannig að á hverjum sólarhring, reiknað frá byrjun vinnudags, fái starfsmaður a.m.k. 11 klst. samfellda hvíld. Verði því við komið skal dagleg hvíld ná til tímabilsins milli kl. 23:00 og 6:00.
Óheimilt er að skipuleggja vinnu þannig að vinnutími fari umfram 13 klst.
Sé starfsmaður sérstaklega beðinn að mæta til vinnu áður en 11 klst. hvíld er náð ber honum uppbótarhvíld sem nemur 1 og 1/2 klst. fyrir hverja klst. sem hvíldin skerðist.
Starfsmaður skal hafa a.m.k. einn vikulegan frídag og skal við það miðað að vikan hefjist á mánudegi.
Desemberuppbót
Desemberuppbót greiðist eigi síðar en 15. desember ár hver.
Þeir sem hafa verið í fullu starfi 1. desember- 30. nóvember eiga rétt á fullri uppbót eða í samræmi við starfshlutfall og starfstíma. Uppbótin er föst fjárhæð, orlof reiknast ekki ofan á hana.
Fullt ársstarf er m.v. 45 vikur, að orlofi frádregnu. Þeir sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða er í starfi fyrstu viku í desember eiga rétt á uppbótinni.
Desemberuppbót á að gera upp við starfslok.
Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlorlofs til starfstíma við útreikning desember- og orlofsuppbótar.
Full desemberuppbót 2020, var 94.000 kr.
Full desemberuppbót 2021, er 96.000 kr.
Full desemberuppbót 2022, er 98.000 kr.
Full desemberuppbót 2023, er 103.000 kr.
Orlofsuppbót
Orlofsuppbót greiðist 1. júní ár hvert.
Þeir sem hafa verið í fullu starfi á orlofsárinu, 1. maí – 30. apríl ár hvert, eiga rétt á fullri uppbót eða í samræmi við starfshlutfall og starfstíma. Orlofsuppbót er föst fjárhæð, orlof reiknast ekki ofan á hana.
Fullt ársstarf m.v. 45 vikur að orlofi frádregnu. Þeir sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða er í starfi fyrstu viku í maí eiga rétt á uppbót.
Orlofsuppbót á að gera upp við starfslok.
Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning desember- og orlofsuppbótar.
Full orlofsuppbót 2020 var 51.000 kr.
Full orlofsuppbót 2021 er 52.000 kr.
Full orlofsuppbót 2022 er 53.000 kr.
Full orlofsuppbót 2023 er 56.000 kr.