Í ljósi Samherjamálsins vekur Efling-stéttarfélag athygli á því að stjórn Eflingar hefur samþykkt stuðning við kröfu um lögfestingu stjórnarskrár sem samþykkt var af íslenskum almenningi fyrir sjö árum síðan. Stjórn Eflingar samþykkti stuðninginn á fundi sínum 17. október síðastliðinn að beiðni Stjórnarskrárfélagsins sem hefur að undanförnu leitað stuðnings félagasamtaka við kröfuna.
„Samherjamálið sýnir í hvað arðurinn af fiskveiðiauðlindinni okkar er notaður. Hann er ekki notaður til að lækka skatta á láglaunafólk, greiða fólki mannsæmandi laun eða efla velferðarþjónustu. Öðru nær, hann er notaður til að fjármagna spillingarbandalög sem teygja sig heimsálfanna á milli,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
„Ástæðan fyrir því að stjórnarskráin sem almenningur kom sér saman um í kjölfar hrunsins var kæfð, er að í henni var öflugt ákvæði um þjóðareign á fiskveiðiauðlindinni. Íslensk auðstétt gat ekki þolað það að íslenskur almenningur fengi eðlilega hlutdeild í arðinum af fiskinum okkar. Alveg eins og Þorsteinn Már stjórnar stjórnmálastéttinni í Namibíu með mútum, þá stjórna menn eins og hann því hvaða stjórnarskrá fólkið á Íslandi fær að velja sér,“ bætti Sólveig við. „Ég er mjög stolt af því að stjórn Eflingar hafi samþykkt að styðja lögfestingu stjórnarskrárinnar.“
——————————————————–
– YFIRLÝSING –
Við krefjumst lýðræðis!
Sjö ár frá þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá
Alþingi fól almennum borgurum að gera tillögur að nýrri stjórnarskrá.
Alþingi voru færðar tillögurnar á tilsettum tíma. Alþingi boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögurnar. Yfir 2/3 hlutar kjósenda samþykktu að tillögurnar skyldu verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár. Síðan eru liðin sjö ár!
Við krefjumst þess að lýðræðislegar grundvallarreglur séu virtar í landinu. Alltaf og afdráttarlaust.
Við krefjumst þess að Alþingi virði vilja kjósenda og lögfesti stjórnarskrá fólksins án tafar.